Frétt

31.03.2009

Ný smurstöð í Skeljungsliðinu

Opnuð hefur verið ný og glæsileg smurstöð við Dalveg í Kópavogi í samstarfi við Skeljung. Þetta er Smurstöðin Stórahjalla sem var að flytja sig um set.

Smurstöðin Stórahjalla opnar nú að Dalvegi 16a í Kópavogi. Smurstöðin er hin glæsilegasta en þar er unnið eftir gæðakerfi þar sem þjónustuferlar frá bílaframleiðendum er fylgt eftir.   Aðstaðan er góð og eru smurstæðin fjögur. Boðið er upp á allar helstu nýjungar í smurþjónustu og þjónustuferlum. Auk almennrar smurþjónustu er boðið upp á mælingu á bremsuvökva eða endurnýjun hans, mælingu á ástandi kælivatns og endurnýjun, bremsu-klossaskipti og aðrar smáviðgerðir. Á meðan á öllu þessu stendur geta viðskiptavinirnir komið sér þægilega fyrir í setustofu og fylgst þaðan með vinnu við bílinn af skjá sem þar er staðsettur.

Smurstöðin Stórahjalla hóf rekstur árið 1978 í samstarfi við Olíufélagið (nú N1) og hefur starfað í 31 ár að Stórahjalla í Kópavogi. Síðastliðið sumar ákváðu eigendurnir, þeir Snjólfur F. Kristbergsson og Ingimundur H. Hannesson að ganga til samstarfs við Skeljung og opna nýja smurstöð að Dalvegi 16A. Húsnæðið við Stórahjalla verður lokað fram á sumar og er viðskiptavinum beint á nýju smurstöðina að Dalvegi.

Föstudaginn 27. mars sl. var haldið opnunarhóf að Dalveginum þar sem mjög vel var mætt af bæði föstum viðskiptavinum og velunnurum fyrirtækisins. Við óskum þeim Snjólfi og Ingimundi til hamingju með stórglæsilega aðstöðu og hlökkum til samstarfsins á komandi árum.





Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fréttir » Frétt
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi