Ráðist hefur verið í lokaendurbætur á Ferrari F60 bíl liðsins undanfarið eftir prufuakstra í Mugello, Sakhir, Jerez og Barcelona. Þá hefur vefsíða formúlunnar á vef Shell.com einnig verið endurbætt og er tvímælalaust ástæða til að kíkja þangað inn.
Samstarf Shell og Ferrari er álitið eitt það farsælasta í sögu Formúlunnar en það hefur leitt til tólf ökuþóratitla og tíu framleiðandatitla.
Af innanbúðarmálum er það að frétta að Formúlubílarnir hafa fengið blendnar móttökur áhugamanna, aðallega vegna nýs útlits sem ekki virðist falla í kramið hjá öllum. En eins og Ferrari ökuþórinn Kimi Räikkönen benti á, „það skiptir ekki máli hvernig hann lítur út, svo lengi sem hann er nógu hraðskreiður.“
Á sama tíma og tókst að halda öllum liðum fyrri tímabils inni með endurfæðingu Honda liðsins sem Brawn GP, þá verða tveir keppnisstaðir því miður kvaddir. Magny Cours í Frakklandi og Circuit Gilles Villeneuve í Kanada verða ekki á listanum í ár. Þó ríkir á sama tíma mikil tilhlökkun í kringum nýjan keppnisstað í Abu Dhabi. Abu Dhabi Grand Prix verður haldið í nóvember við bestu mögulegu aðstæður fyrir keppendur og má búast við að keppt verði þar um ókomin ár.
Fylgjast má með fréttum af Formúlunni á vef Shell og verða fyrstu fréttirnar af undirbúningi í Melbourne komnar inn fyrir keppnina á sunnudagsmorgun.
Þangað til…
• Formúluvefur Shell