Frétt

20.03.2009

Fyrirkomulag á sjálfsafgreiðslu eldsneytis

Nokkuð hefur borið á þeim misskilningi undanfarið að Skeljungur hafi nýverið tekið upp á því að læsa eldsneytisdælum á stöðvum fyrirtækisins á kvöldin.

Þótt alltaf sé eitthvað um að óprúttnir aðilar dæli á bíl sinn og aki svo í burtu án þess að greiða, þá hefur vinnulaginu hvað þetta varðar ekki verið breytt. Fyrirkomulagið undanfarin ár hefur verið þannig að á kvöldin og næturnar þarf starfsmaður að gefa heimild til að opna fyrir dælingu. Þannig er sá kostur fyrir hendi að ef starfsmanni líst svo á getur hann fengið viðskiptavininn fyrst inn að borga áður en opnað er fyrir dælingu. Þessu fyrirkomulagi hefur ekkert verið breytt að undanförnu en starfsmenn þó beðnir að vera sérstaklega á varðbergi.

Í tengslum við þessa umræðu vill Skeljungur vekja athygli á þægindunum sem fylgja Staðgreiðslukorti Skeljungs. Með kortinu er hægt að greiða við dælu. Kortið er í greiðslukortastærð og ekki þarf að muna PIN númer. Kortinu er einfaldlega beint að dælunni og upphæðin er dregin af tengdu debet- eða kreditkorti að dælingu lokinni. Þá veitir kortið 3 krónu afslátt af dæluverði hjá Skeljungi og 2 krónu afslátt af dæluverði hjá Bensínorkunni. Hægt er að fylgjast með úttektum á þjónustuvef Skeljungs. Þá er hægt að sækja um fleiri en eitt Staðgreiðslukort á sama debet- eða kreditkort, sem er hentugt ef margir fjölskyldumeðlimir nota þennan greiðslumáta

Staðgreiðslukort - umsókn





Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fréttir » Frétt
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi