Samkvæmt samkomulaginu mun Codexis vinna náið með Shell og Iogen Energy Corporation til að auka virkni ensíma sem notuð eru við framleiðslu á etanóli úr sellulósa. Iogen verksmiðjan í Ottawa í Kanada framleiðir nú hundruð þúsunda lítra af etanóli úr sellulósa, úr ýmsum landbúnaðarúrgangi, til dæmis hveitihálmi.
Rannsóknarverkefninu í samstarfi við Codexis er ætlað að bæta ferlið hjá Iogen. Í tækni Iogen eru notuð ensím sem brjóta niður sellulósa í trefjum úr landbúnaðarúrgangi og breyta honum í sykrur, og úr þeim er svo unnið etanól.
Í samkomulaginu felst jafnframt áframhaldandi vinna við verkefni sem farið var af stað með í nóvember 2007. Það felst í rannsóknum á öðru lífrænu eldsneyti og nýjum ensímum sem eiga að breyta lífrænum massa beint í form sem er sambærilegt við bensín og diesel.
„Sérþekking starfsmanna Codexis mun skipta miklu í kapphlaupinu við að koma á framleiðslu á lífrænu eldsneyti fyrir almennan markað,“ segir Graeme Sweeney, varaforstjóri Shell á sviði framtíðareldsneytisgjafa og koltvísýrings. „Betri ensím munu auka afköst og lækka kostnað.“
Nánari upplýsingar:
• Umfjöllun um málið á vef Shell