Frétt

19.03.2009

7 kr. afsláttur af eldsneytislítranum við fyrstu kaup

Þeir sem sækja um Staðgreiðslukort Skeljungs fyrir 1. júní fá 7 kr. afslátt af eldsneytislítra í fyrsta skiptið sem kortið er notað. Eftir það fæst 4 kr. afslátt af eldsneytislítra hjá Skeljungi og 2 kr. afsláttur hjá Bensínorkunni. Þessi afsláttur fæst til áramóta.

Kortið er auðvelt að nota enda þarf aðeins að leggja kortið upp að dælulesara til að opna fyrir úttektir. Úttektum er svo hægt að fylgjast með á þjónustuvefnum. Korthafar geta valið um að hafa PIN númer á kortinu eða ekki. Þeir sem kjósa að hafa PIN númer á kortinu geta valið það sjálfir. Korthafi velur einnig sjálfur hvenig hann telur best að ráðstafa veltutengdum punktum.

Staðgreiðslukortið veitir auk þess 15% afslátt af smurolíum, frostlegi, rúðuvökva og afslátt í þvottastöðvum Skeljungs sem og smurþjónustu hjá smurstöðvum Skeljungs við Skógarhlíð og Laugaveg 180.

Staðgreiðslukortið veitir einnig afslátt hjá völdum samstarfsaðilum Skeljungs.

  • 15% afslátt af dekkjum og smurþjónustu hjá Pitstop
  • 15% afslátt af vörum hjá Stillingu
  • 10% afslátt af dekkjum og þjónustu hjá Sólningu
  • 10-15% afslátt af smur- og dekkjaþjónustu hjá Nesdekk
  • 20% afslátt af vinnu hjá Smur 54.

 





Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fréttir » Frétt
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi