Þann 1. apríl mun verðið umreiknast yfir í íslenskar krónur, þ.e.a.s. þegar reikningar eru gerðir. Ef um staðgreiðslu er að ræða er gengi greiðsludags notað. Miðað er við skráningu á sölugengi sterlingspunds hjá Seðlabanka Íslands.
Sprettur er fjölkorna áburður sem framleiddur er í Skotlandi. Framleiðandinn, Carrs Fertilisers, gerir miklar gæðakröfur sérstaklega til einsleitni kornastærðar og rykleysis í áburðinum.
Sprettur hefur verið í stöðugri sókn síðan hann kom á markað 2005. Greinilegt er að fleiri og fleiri kunna að meta gæði Sprettsins.
Sölumenn Spretts eru víða um land og hægt er að sjá á verðlistanum hver þjónar hverju svæði. Þar eru einnig upplýsingar um hvernig best er að hafa samband við þá.
Ákveðið hefur verið að bjóða upp á allar tegundir sem voru í boði árið 2008 að undanskilinni 12-15-20. Þá er í boði ein ný tegund, 27-6-6, sem er einkorna áburður með brennisteini (2%).
Efnasamsetning Spretts er eins og árið 2008 (og öll árin þar á undan). Enn eru öll nauðsynlegu snefilefnin til staðar, svo sem kalsíum (Ca), magnesíum (Mg) og brennisteinn (S).
Mikilvægt er að fá áætlanir um magn og tegundir sem fyrst þar sem nauðsynlegt er að koma fljótlega út pöntun og skipuleggja flutning á áburðinum til landsins.
Sprettur - verðlisti.