Vegna lækkunar á heimsmarkaðsverði á diesel- og skipagasolíu síðustu daga hefur Skeljungur ákveðið að lækka verðið um 5 krónur.
Þessi verðþróun er í samræmi við verðlagningarstefnu Skeljungs um að eldsneytisverð fylgi heimsmarkaðsverði og gengi krónunnar. Almennt verð á diesel verður 162,8 krónur eftir breytingu og almennt verð á bensíni áfram 144,4 krónur.