Frétt

21.01.2009

Neytendastofa kannar verðmerkingar hjá olíufélögunum

Skeljungur stendur sig best af olíufélögunum í verðmerkingum á bensínstöðvum, samkvæmt nýrri könnun Neytendastofu. Könnunin fór fram í desember sl. og náði til bensínastöðva á höfuðborgarsvæðinu, Hveragerði, Akranesi og Borgarnesi.

Verðmerkingar voru kannaðar á samtals 408 vörutegundum og eingöngu á þeim stöðvum sem bjóða sérvöru. Á heildina litið hlaut Skeljungur fæstar athugasemdir eða í 12% þeirra tilvika sem verðmerkingum var á einhvern hátt ábótavant. Athugasemdir voru gerðar ef verðmerkingar vantaði eða misræmis gætti á milli hilluverðs og kassaverðs.

Til samanburðar má svo nefna að þriðjungur verðmerkinga reyndust í ólagi, samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar, á þeim bensínstöðvum þar sem verst lætur.

Nánar um niðurstöður könnunarinnar má finna á vefsíðu Neytendastofu.





Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fréttir » Frétt
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi