Frá upphafi hefur Skeljungur lagt mikinn metnað í útgáfu á vönduðum dagatölum sem nýst geta bæði viðskiptavinum Skeljungs sem landsmönnum öllum. Dagatalaútgáfa Skeljungs á sér mikla sögu en fyrsta dagatalið var gefið út árið 1959 og vakti það mikla athygli. Til að mynda fjallaði Morgunblaðið um fyrstu tvö dagatöl Skeljungs og sagði í umfjöllun blaðsins að dagatölin væru sérlega falleg og bæru vott um einstaka smekkvísi og fagran frágang.
Hægt er að nálgast eintak af dagatali Skeljungs fyrir árið 2009 í móttöku Skeljungs að Hólmaslóð 8.