80 ár eru nú liðin frá því HF Shell var stofnað, en það hét felagið áður en það breyttist í Skeljung hf. árið 1955. Sagan er því orðin löng og reynsla félagsins og starfsmanna þess mjög víðtæk.
Starfsfólk Skeljungs er stolt af aldri félagsins en þrátt fyrir háan aldur er starfsemin alltaf að sækja á nýjar brautir. Nú í tilefni afmælisins hefur verið opnaður nýr vefur fyrirtækisins. Vefurinn hefur fengið andlitslyftingu og er útlit hans tengt nýju merki Skeljungs sem tekið var í notkun í dag.
Með fréttinni er að sjá nýtt merki Skeljungs. Hægt er að nálgast nýja merkið í fullum gæðum hér.