Tímamótasamningur
Þröstur Arnarson sölustjóri á fyrirtækjasviði og Stefán Karl Segatta framkvæmdastjóri neytendasviðs skrifuðu undir samninginn fyrir hönd Skeljungs og formaður Ferðaklúbbsins 4x4, Agnes Karen Sigurðardóttir fyrir hönd klúbbsins. Undirritunin fór fram á fjölmennum og líflegum félagsfundi 4x4. "Um eitt hundrað félagsmenn voru mættir á fundinn. Við kynntum fyrir þeim afsláttarkjörin á eldsneyti, styrkinn og þau fríðindi sem Skeljungur býður félagsmönnum 4x4, auk þess að kynna hvað í samstarfinu felst að öðru leyti" segir Þröstur Arnarson sölustjóri. "Það voru líflegar umræður og félagsmenn voru mjög sáttir við þau góðu kjör sem samningurinn felur í sér". Barbara Ósk Ólafsdóttir gjaldkeri og stjórnarmaður Ferðaklúbbsins 4x4 tekur undir þessi orð. "Þetta er tímamótasamningur og öflugasti samstarfssamningur sem við höfum gert hingað til" segir hún. "Eldri samningur við Skeljung var góður en þessi er ennþá betri."
8 deildir með 4.000 ferðaglöðum félögum
Ferðalúbburinn 4x4 var stofnaður árið 1983 af áhugamönnum sem vildu hvetja til ábyrgari ferðamáta í náttúru Íslands á fjórhjóladrifnum jeppum. Markmið klúbbsins er að ná til Íslendinga sem eru áhugasamir um jeppaferðalög á Íslandi, styðja við hagsmunamál þeirra og auka þekkingu á jeppabúnaði og tækjum auk þess að hvetja til náttúruverndar með því að taka þátt í umræðum og sýna gott fordæmi. Barbara segir að reksturinn hafi þanist út á undanförnum árum og skiptist hann nú í átta deildir eftir landshlutum: Reykjavíkursvæðið, Vesturland, Vestfirði, Norð-Vesturland, Norðurland, Norð-Austurland og Reykjanes. Hún segir að útgjöld hafi þar af leiðandi aukist svo styrkur Skeljungs veiti klúbbnum í raun það svigrúm sem hann þarf til að takast á við framtíðina. "Klúbburinn er orðinn mjög fjölmennur, með um 4.000 félagsmenn sem fer stöðugt fjölgandi. Og við erum einmitt núna að leita að stærra og betra húsnæði í samráði við Skeljung."
Ábyrgari ferðamáti og náttúruvernd á breyttum jeppum
Klúbbfélagar hittast í hverjum mánuði, nema í júlí og ágúst, enda eru opnir fundir alla fimmtudaga. Út kemur mánaðarlegt fréttabréf sem er sent til allra félaga. Skipulagðar eru vetrarferðir fyrir byrjendur og stórar langferðir yfir vetarmánuðina og fjölskylduferðir yfir sumartímann. "Meginhagsmunamál klúbbsins eru að fá að breyta bílunum okkar og fá að ferðast um landið á þeim" segir Barbara. Hún segir að tilhneigingin sé að banna sem mest og stundum séu bönnin byggð á þekkingarskorti. Þá komi félagar í klúbbnum inn í umræðuna og miðli af sinni yfirgripsmiklu þekkingu varðandi jeppaakstur og umgengni við náttúruna. "Klúbburinn hefur átt þátt í að gjörbreyta viðhorfum og hugsunarhætti jeppamanna varðandi akstur um landið, enda teljum við að umhverfisvernd og rétturinn til að ferðast fari algjörlega saman" bætir Barbara við. "Ég er mjög stolt af starfi klúbbsins og að við skyldum landa þessum frábæra samningi við Skeljung".