Frétt

17.11.2008

Olíuiðnaður leggur sitt af mörkum

Vatnsskortur er vaxandi vandamál víða um heim, en talið er að því fólki sem býr við takmarkaðan aðgang að drykkjarhæfu vatni muni fjölga úr allt að 700 milljónum í um 3 milljarða á næstu áratugum.

Ofan á þetta bætist að atvinnustarfsemi, á borð við olíuframleiðslu, gengur síðan enn frekar á takmarkaðar vatnsbirgðirnar. Zara Khatib, sérfræðingur hjá Shell, segir að þetta sé vandamál sem olíufélögin geti lagt sitt af mörkum til að leysa. Khatib hefur starfað hjá Shell í meira en tuttugu ár og er einn helsti sérfræðingur olíuiðnaðarins á vatnsnotkun. Hún hefur átt sæti í nefndum á vegum Sameinuðu Þjóðanna og hefur meðal annars verið ráðgjafi fyrir G8 ríkin og Alþjóða orkuráðið.

Dæla upp meira vatni en olíu
Olíuiðnaðurinn treystir mjög á vatn við framleiðslu sína. Í sumum tilfellum þarf að dæla heitri gufu niður í borholur til að hita upp olíuna svo að flæði hennar verði betra eða að veita vatni niður í þær til að þrýsta olíunni upp. Því setur vatnsþörf iðnaðarins aukið álag á vatnsforða heimsbyggðarinnar. Það eru ekki margir sem gera sér grein fyrir því að olíulindir innihalda, auk hinnar verðmætu olíu, vatn. Undir olíulindum, og stundum í þeim miðjum, leynist gríðarmikið magn af vatni og má segja að með hverjum lítra af hráolíu sem unninn er úr jörðu fylgi tveir til þrír lítrar af vatni.

Breytt viðhorf til vatnsnotkunar
Eftir því sem olíulindin eldist eykst vatnsmagnið í henni og í sumum tilfellum er það svo að 15% af þeim vökva sem dælt er úr jörðinni er olía, afgangurinn er vatn. Þetta vatn segir Khatib að hægt sé að endurvinna og nýta í þágu almannaheilla. „Það eru til aðrir orkuberar heldur en olía en það getur ekkert komið í stað vatns,“segir Khatib. Rannsóknir Khatib hafa stuðlað að breyttu viðhorfi innan olíuiðnaðarins. Það sem áður var séð sem aukaafurð sem þyrfti að skilja frá olíunni með kostnaðarsömum hætti er nú séð sem auðlind sem getur nýst við að lágmarka það magn af ferskvatni sem iðnaðurinn þarf við framleiðslu sína.

Heimild:
http://www.shell.com/home/content/aboutshell/swol/july_oct2008/zara_khatib_24102008.html





Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fréttir » Frétt
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi