Skeljungur rekur tvenns konar verslanir, Shell og Select. Munurinn á þessum tveimur tegundum verslana er fólginn í vöruvali og þjónustustigi.
Staðsetning Shell og Select stöðva
Bensínstöðvar Shell eru með grundvallar vöruval, bæði í bílavörum sem og sælgæti, skyndibita og nýlenduvöru. Megináhersla Shell stöðvanna er eldsneytissala og þjónusta við bíleigendur og ökumenn. Hægt er að kaupa eldsneyti í sjálfsafgreiðslu og greiða þannig lægra verð fyrir eldsneytið eða þiggja þjónustu útistarfsmanna (starfsmanna á plani) sem reyna eftir fremsta megni að þjónusta viðskiptavini með allt sem þá vanhagar um. Sem dæmi um þjónustu útistarfsmanna má nefna:
Tekið skal fram að útistarfsmenn skipta ekki um rafgeyma og fylla ekki á sjálfskiptivökva.
Verslanir Select eru 8 talsins. Þær bjóða upp á meira vöruval og lengri afgreiðslutíma en venjulegar Shell stöðvar. Fjórar af sex Select verslunum eru með opið allan sólarhringinn. Þetta er þjónusta sem sýnt hefur verið fram á að viðskiptavinir Skeljungs kunna vel að meta. Sama þjónusta er í boði fyrir viðskiptavini á útisvæði og almennt gerist á Shell stöðvunum.
Vöruval Select er fólgið í breiðari vörulínu í nýlenduvöru. Viðskiptavinir eiga að geta fundið flest alla nauðsynjavöru sem þörf er á fyrir fólk á hraðferð eða þegar stórmarkaðirnir eru lokaðir. Það sem Select hefur helst umfram Shell stöðvar er eftirfarandi: