Skilmálar

Skilmálar Staðgreiðlsukorts og Staðgreiðslulykils Skeljungs hf.

Umsókn og útgáfa Staðgreiðslukorts og Staðgreiðslulykils

Skrifstofa Skeljungs hf. , Borgartúni 26, 105 Reykjavík, gefur út Staðgreiðslukort og Staðgreiðslulykla. Hægt er að sækja um Staðgreiðslukort og Staðgreiðslulykla á heimasíðu Skeljungs, www.skeljungur.is eða í síma 444 3000. Til einföldunar er í skilmálum þessum átt við bæði Staðgreiðslukort og Staðgreiðslulykla þegar talað er um Staðgreiðslukort.

Almennt um Staðgreiðslukort

  • Staðgreiðslukortið er eign Skeljungs en meðferð og notkun þess er á ábyrgð handahafa kortsins. 
  • Staðgreiðslukort er ætlað til úttekta í sjálfsölum og bensínstöðvum Orkunnar og Shell og verslunum Stöðvarinnar.
  • Skráður handhafi Staðgreiðlsukorts skuldbindur sig til að greiða að fullu allar þær úttektir sem framkvæmdar eru með kortinu, hvort sem þær eru í þágu handhafans eða þriðja aðila.
  • Vilji handhafi Staðgreiðslukorts hætta við dælingu skal byssa valinnar bensínafgreiðsludælu tekin úr slíðrinu og sett kyrfilega aftur í slíðrið. Sé hins vegar ekkert aðhafst lokast dælan sjálfkrafa eftir 1,5-3 mínútur. Handhafi Orkulykils ber áhættuna af því að þriðji aðili hefji ekki dælingu á meðan.  
  • Staðgreiðslukort eru tengd debet- eða kreditkorti. Úttektir sem gerðar eru með Staðgreiðslukorti eru því innheimtar með færslu um kortareikning viðkomandi korts. 
  • Á sérstökum afsláttardögum leggjast tilgreindir afslættir ekki ofan á þá afslætti sem lyklahafar eru með fyrir, nema það sé sérstaklega tekið fram. Viðskiptavinur fær ávallt þann afslátt sem hagstæðastur er hverju sinni.
  • Staðgreiðslukortið er sent heim að dyrum, viðskiptavini að kostnaðarlausu. Mikilvægt er að rétt heimilisfang sé skráð við umsókn um Staðgreiðslukortsins.

Notkun upplýsinga

Þegar sótt er um Staðgreiðslukort skal gefa upp GSM-númer og netfang. Skeljungur áskilur sér rétt til að nota upplýsingarnar til að senda skráðum handhafa Staðgreiðslukorts upplýsingar um tilboð eða annað kynningarefni sem þeim býðst á Orkunni, Stöðinni eða hjá Shell, og handhafinn hagnast á. Upplýsingarnar verða ekki sendar þriðja aðila.

Glatað kort

Glatist Staðgreiðslukort skal tilkynna það án tafar með tölvupósti á skeljungur@skeljungur.is eða í síma 444 3000 á skrifstofutíma. Utan skrifstofutíma skal tilkynna það í símanúmerið 444 3024.
Athugaðu að handhafi Staðgreiðslukorts ber fulla ábyrgð á eldsneytisúttektum allt þar til tilkynning hefur borist Skeljungi um að viðkomandi kort hafi glatast.

Skilmálabreytingar

Skeljungur áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum þessara viðskiptaskilmála, enda verði handhafa Staðgreiðlsukorts tilkynnt um það.  Útsending nýrra viðskiptaskilmála í almennum pósti og/eða birting á heimasíðu Skeljungs telst nægileg tilkynning.  Litið er svo á, að handhafi Staðgreiðlsukorts hafi samþykkt breytinguna ef hann notar kortið eftir að tilkynning um breytingu hefur verið gefin út.

Ágreiningur

Rísi ágreiningur milli aðila um efni þessara viðskiptaskilmála eða vegna brota á þeim er heimilt að reka mál  vegna þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.

Gildistími skilmála

Skilmálar þessir gilda frá 7. desember 2011


 



Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Einstaklingar » Kortaþjónusta Skeljungs » Staðgreiðslukort/lykill » Skilmálar
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi