Öryggið hefur forgang. Okkur ber að huga að öryggi þeirra sem með okkur ferðast sem og annarra í umferðinni. Hér eru nokkur einföld atriði og varúðarráðstafanir sem geta skipt sköpum.
Með augun á veginum.
Við árekstur á fram- eða afturenda bifreiðar draga loftpúðar (í stýri og mælaborði) úr hættu á meiðslum á efri hluta líkamans (höfuð og brjóstkassa). Sumar bifreiðar eru einnig með hliðarloftpúða sem eiga að veita viðbótarvörn þegar ekið er á hlið bifreiðarinnar. Athugið að loftpúðar koma ekki í stað öryggisbelta.
Kornabörn á ætíð að hafa í sérstökum öryggisstólum svokölluðum barnabílstólum. Athugið að það má alls ekki setja barnabílstól þar sem loftpúði er. Æskilegast er að börn sem eru tólf ára eða yngri ferðist í aftursæti. Einn helsti framleiðandi barnabílastóla í heimi (Britax) miðar við að börn upp að u.þ.b. 9 til 10 kg. (9 mánaða) noti stóla sem snúi baki í akstursstefnu en síðan snúi þau fram (sjá líka staðal Evrópusambandsins (R44.03))
Best er að þvo bílbelti með mildri sápulausn. Athugið að beltin þurfa að þorna vel og að ekki á að taka beltin úr bílnum við þvott.
Það er ekki til eitt algilt svar við þessari spurningu enda margar gerðir stóla á markaðinum sem standast ströngustu öryggiskröfur. Britax barnabílstólarnir hafa ávallt komið vel út úr öllum viðurkenndum prófunum á öryggi og gæðum barnabílstóla.
Það fer eftir gerð stólsins. Æskilegt er að leita upplýsinga hjá söluaðila áður en barnabílstóll er festur í bíl.
Það er margt sem getur valdið ískri í bremsum. Oftast kemur ískur þegar bremsudiskur er orðinn slitinn en þá þarf að láta renna hann eða skipta um hann. Einnig getur ískrað í bremsum þegar að steinn er fastur við bremsuklossann. Það leynir sér hins vegar sjaldnast þegar bremsuklossar eru búnir, því þá heyrist gróft járn í járn hljóð.
Öruggasta leiðin til að tryggja að öryggisbúnaður bílsins sé ávallt í lagi er að láta fagmenn yfirfara búnaðinn með reglulegu millibili.